29.11.2007 | 02:23
hummhumm
Var að klára heimapróf sem ég hef verið að vinna í undanfarnar tvær vikur og er því ekki mótíveraður til að gera nokkurn skapaðan hlut eins og er. Það er heldur betur góð tilfinning að önnin sé að fara að klárast, en ég verð að viðurkenna að um miðbikið leist mér ekki á blikuna vegna álags. Gott ef það hafi ekki verið smá þunglyndi jafnvel og hugleiðingar um flutninga heim til Íslands. En þetta reddast nú allt yfirleitt og ekki laust við að ég hafi jafnvel lært eitthvað í haust. Ekki man ég það nú eins og er, en ég er viss um að eitthvað komi til með að sitja eftir...
Hér í US and A voru gefnar þakkir í síðustu viku. Það er skemmtileg hátíð verð ég að segja. Aðal hátíðardagurinn var náttúrulega fimmtudagurinn en þá bröltum við Dee á fætur upp úr 10 og tókum að undirbúa kalkúninn (hún stjórnaði að sjálfsögðu, ég gerði bara það sem mér var sagt). Í bakgrunninum er svo hin árlega Macy´s Day Parade þar sem fjöldinn allur af fólki röltir niður Broadway og heilmikið húllumhæ. Upp úr 1 gat ég svo sest og horft á ruðninginn, en boðið var upp á þrjá leiki yfir daginn svo kaninn hafi nóg á að horfa á meðan borðað er. Það kannast sjálfsagt allir við fyllinguna sem serveruð er með fuglinum en hápunktur máltíðarinnar er að mínu mati sætkartöflukasserólið sem er algjört lostæti. Sá réttur er jú líka sannkölluð kaloríubomba en manni er alveg sama, bragðið setur mann í einkennilegan "fíling" og ekkert hægt að gera annað en að fá sér meira.
Á föstudeginu fara svo næstum allir kanar að versla jólagjafir. Einhverra hluta vegna þykir það góð hugmynd að allir fari í jólainnkaupin á sama degi, og helst allir snemma morguns. Ég á enn eftir að prófa þetta, en orðið á götunni er það að þeir hörðustu borði á sig gat til miðnættis og fari svo og standi í röðum fyrir utan búðirnar sem opna fjórðungi úr sólarhring síðar. Það er sjálfsagt eitt að gera það á Florida í góðu veðri, en hérna fyrir norðan? Sumt fólk er bara ekki í lagi...
Svo eru það jólaáformin, en þau eru ólík fyrstu drögum. Vegna veikinda pabba hennar Dee verðum við tvö hjá fjölskyldu hennar á Florida fram til 26. des og fljúgum svo til Íslands til að fagna áramótunum. Það verður sérstök upplifun að halda jól í Bandaríkjunum, og það á Florida í þokkabót... Pakkarnir opnaðir á jóladag (hvað er það?) og pálmatré fyrir utan stofugluggann. Jeminn. En þetta verður örugglega mjög notalegt, og bara skemmtilegt að upplifa öðruvísi jól en haldin eru heima. (mér hefur verið sagt að á aðfangadagskvöld er alltaf lasagne í matinn, hmm)
Í jólagjöf langar mig svo í einhverja bók eftir Albert Straumfjörð. Þið megið velja hvaða bók það verður, bara hafa það klassískan Straumfjörð. Þið vitið... baðstofurómantík... sviðasulta og skítalykt.
Um bloggið
BaLLoG lýgur aldrei
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.3.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 5633
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

hbb





Athugasemdir
jæja kallinn
maría (IP-tala skráð) 9.2.2008 kl. 15:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.